top of page
RST Website About.png

Útibúið í vestmannaeyjum

DJI_0814-scaled.jpeg

Við höfum einnig séð um  uppsetningu og vinnu við allan háspennubúnað fyrir fiskeldisfyrirtækið Laxey, þar sem viðkomandi lausnir hafa verið sniðnar að þörfum fyrirtækisins.


Auk þess höfum við sinnt fjölbreyttum verkefnum fyrir rafknúnu Vestmanneyjaferjuna Herjólf, þar á meðal  uppsetningu og þjónustu á hleðslubúnaði hans.

 

Þessi verkefni undirstrika fjölbreytta þjónustu okkar í Vestmannaeyjum og þá mikilvægu ábyrgð sem við berum á að tryggja stöðugan rekstur lykilinnviða samfélagsins.

Varmadaelustod-1024x683.jpg
ÚTIBÚIÐ Í VESTMANNAEYJUM

RST Net rekur útibú í Vestmannaeyjum sem sinnir fjölbreyttum verkefnum fyrir heimamarkaðinn. Þar veitum við þjónustu bæði við orkufyrirtæki og atvinnulíf, hvort sem um er að ræða viðhald, rekstur eða nýframkvæmdir í háspennu- og lágspennukerfum. Starfsmenn útibúsins hafa víðtæka reynslu og þekkingu á innviðum svæðisins og tryggja þannig áreiðanlega þjónustu í nánu samstarfi við viðskiptavini.


Eitt af stærri verkefnum okkar var varmadælustöðin í Vestmannaeyjum, þar sem við sáum um uppsetningu á búnaði. Í kjölfarið höfum við séð um þjónustu og eftirlit. Stöðin gegnir lykilhlutverki í orkuskiptum á svæðinu og með reglulegri þjónustu og viðhaldi tryggjum við öruggan og hagkvæman rekstur hennar.

Steinn Þórhallsson.png
Steinn Þórhallsson

Þjónustustjóri

Email: st@rst.is

bottom of page