top of page
RST Website Home.png

Sérhæfð þjónusta við orkuiðnaðinn

RST Website Home 2.png
RST Website Home 3.png

Sérhæfð þjónusta fyrir orku-, iðngeirann og stórnotendur

RST Net sérhæfir sig í uppsetningu og þjónustu á raf- og vélbúnaði fyrir orkuiðnaðinn og fyrirtæki af öllum stærðum. Við nýtum áratuga reynslu og sérþekkingu til að bjóða lausnir sem tryggja rekstraröryggi, lengja líftíma búnaðar og draga úr bilunum – með sérstakri áherslu á fyrirbyggjandi viðhald og reglulegar prófanir.

Við bjóðum jafnframt upp á lausnir frá traustum samstarfsaðilum á borð við MR Reinhausen, BAUR, Aktif og fl., sem gera okkur kleift að mæta fjölbreyttum þörfum viðskiptavina. Með fagmennsku, reynslu og þjónustulund leggjum við áherslu á að sameina nýsköpun og stöðugar umbætur við áreiðanlegar lausnir til að tryggja öruggan og skilvirkan rekstur.

  • Útkallsþjónusta

  • Viðhald og þjónusta á spennum, rafbúnaði og vélum

  • Olíuvinnsla

  • Ástandsskoðanir og bilanagreining

RST Icon 1.png
  • Hönnun og uppsetning

  • Endurnýjun og uppfærslur

  • Stafræn tengivirki, háspennutengingar og virkjanir

RST Icon 2.png
RST Icon 3.png
  • Rafmagnstöflur og stjórnskápar

  • VERTO Dreifispennistöðvar

  • Sérsmíðaðar lausnir fyrir viðskiptavini

RST Icon 4.png
  • Viðhalds- og endurnýjunarþarfir

  • Raforkugæði og skilvirkni

  • Tækniráðgjöf og verkfræðistuðningur

VEFVERSLUN - coming soon
RST Website Home4_edited.jpg

RST NET: GÆÐAÞJÓNUSTA SEM ÞÚ GETUR TREYST

RST Net starfar samkvæmt alþjóðlegum stöðlum og er vottað af BSI fyrir gæðastjórnun (ISO 9001), umhverfisstjórnun (ISO 14001) og jafnlaunastjórnun (ÍST 85:2012). Þessar vottanir ná yfir alla starfsemi fyrirtækisins og endurspegla skuldbindingu RST Net til að tryggja faglega framkvæmd, ábyrgð í umhverfismálum og jafnrétti á vinnustað.

RST Website Home 4.png
RAFMAGNSTÖFLUR
RST Website Home 5.png

RST Net hannar, framleiðir og setur upp rafmagnstöflur fyrir verkefni af öllum stærðum. Með traustum framleiðendum eins og CUBIC bjóðum við sérsniðnar og sveigjanlegar lausnir sem tryggja öruggan rekstur og langan líftíma búnaðar.

 

Allar töflur eru smíðaðar og prófaðar samkvæmt ströngustu gæðakröfum, og við veitum faglega ráðgjöf til að hámarka áreiðanleika og skilvirkni.

VILTU FÁ TILBOÐ Í TÖFLU?
Fylltu út formið á rst.is/toflur og við sendum þér tilboð.

RST Website Home 6.png
STAFRÆN VÖKTUN OG MÆLINGAR

RST Net tryggir öruggan rekstur raforkukerfa með lausnum frá Safegrid, sem bjóða upp á stafræna vöktun, og sérhæfðum mælingum með mælitækjum frá OMICRON. Fyrirbyggjandi vöktun og mælingar lengja líftíma búnaðar, minnka bilanir og auka afhendingaröryggi.

Lr.edit-10.jpg
SPENNAVIÐHALD OG StÓRFRAMKVÆMDIR
Lr.edit-29.jpg

RST Net hefur sérhæft verkstæði fyrir spennaviðhald, búið brúkrana með 60 tonna lyftigetu  og sérhæfðum búnaði sem gerir okkur kleift að sinna bæði reglubundnu viðhaldi og stærri endurbótum á spennum. RST Net er viðurkenndur umboðs- og þjónustuaðili MR Reinhausen á Íslandi og býður upp á sérþjónustu í tengslum við spennubúnað og stýrikerfi þeirra.

RST Net hefur mikla reynslu af stórframkvæmdum, þar á meðal við uppsetningu og endurnýjun búnaðar í aðveitustöðvum og virkjunum, útdrátt og lagningu háspennustrengja fyrir stóriðju og orkuveitur landsins, auk tengivinnu við dreifi- og flutningslínur.

RST Website Home 9.png
RST Website Icon.png

FRÉTTIR

SAMSTARFSAÐILAR

Hjá RST Neti trúum við því að öflugt samstarf leiði til öflugri lausna. Þess vegna vinnum við með fremstu tæknifyrirtækjum heims á sviði orku, öryggis og innviða. Með sérþekkingu og hágæðavörum samstarfsaðila okkar getum við boðið íslenskum markaði áreiðanlegar og nýstárlegar  lausnir sem eru studdar af traustri þjónustu og ráðgjöf á heimavelli.

RST Website Home5.png
HAFÐU SAMBAND
bottom of page