top of page
RST Website About.png

Vinnustaðurinn

Vinnustaðurinn.png
Fjölskylduvænn og skemmtilegur vinnustaður

RST Net leggur áherslu á jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Verkefni fyrirtækisins geta stundum kallað á fjarveru frá heimili, en þegar unnið er nær heimabyggð er tekið sérstakt tillit til þess. Við leggjum áherslu á sanngjörn kjör og góðan aðbúnað.


Reglulega eru haldnir fjölskylduviðburðir þar sem makar, börn og barnabörn eru velkomin – til
dæmis jólaball með jólasveinum eða sumarhátíð á höfuðstöðvunum.


Starfsmannafélagið er öflugt og skipuleggur nokkra viðburði á ári, allt frá golfhermi og pílu til
veitingahúsaferða. Á tveggja til þriggja ára fresti er boðið upp á árshátíðarferð erlendis, til dæmis til
Prag eða Lissabon, en á milli þess eru haldnar árshátíðir eða jólahlaðborð.


Við trúum því að ánægja, samvera og jákvæð menning stuðli að betri árangri – og meiri gleði í starfi.

RST Website About2.png

Aðstaða og tækjabúnaður

Starfsemi RST Nets fer fram í nýju, sérhönnuðu húsnæði við Álfhellu 6 í Hafnarfirði. Húsnæðið er sniðið að þörfum okkar og býður upp á einstaka aðstöðu fyrir upptekt á aflspennum. Þar er mikil lofthæð og nýr brúkrani með allt að 60 tonna lyftigetu sem gerir okkur kleift að taka að okkur umfangsmikil verkefni með öruggum hætti.


Við höfum jafnframt yfir að ráða fjölbreyttum og sérhæfðum tækja- og mælibúnaði. Þar á meðal eru mælitæki frá OMICRON, þrjú olíuhreinsitæki frá Micafluid – þar á meðal Micafluid VOP090, sem er
það öflugasta sinnar tegundar á Íslandi og tryggir hreinsun með meiri afkastagetu en nokkuð annað tæki á markaðnum.

Símenntun

RST Net hvetur starfsfólk til að efla þekkingu sína og færni. Við bjóðum starfsmönnum að sækja námskeið sem tengjast öryggismálum og réttindum og styðjum þá sem vilja afla sér frekari menntunar eða sérhæfðra réttinda. Þannig fá allir tækifæri til að halda áfram að þróast í starfi og vera vel undirbúinir fyrir fjölbreytt verkefni fyrirtækisins.

Fagmennska og áreiðanleiki í þágu sjálfbærrar framtíðar

RST Net byggir á fagmennsku og áreiðanleika í allri starfsemi, þar sem opin og traust samskipti við viðskiptavini og samstarfsaðila eru í forgrunni. Með víðtækri reynslu og þekkingu tryggjum við hágæðalausnir í hönnun, smíði og uppsetningu rafbúnaðar, allt frá stjórnskápum upp í dreifispennistöðvar og afldreifitöflur. Með stöðugri þróun og nýsköpun leggjum við okkar af mörkum til að efla raforkuinnviði landsins, styðja við orkuskipti og sjálfbærni og skapa þannig áreiðanlegt samstarf og traustan grunn að sjálfbærri framtíð Íslands.

Mannauðsstefna

Mannauðsstefnan byggir á gildum fyrirtækisins og leggur grunn að öflugum, sanngjörnum og hvetjandi vinnustað.

 

  • Faglegt ráðningarferli – nýtt starfsfólk er ráðið á faglegum forsendum. Teknir eru stöðufundir eftir þrjá mánuði og árlega til að styðja frammistöðu og starfsþróun.

  • Þróun og endurmenntun – starfsfólk fær tækifæri til að styrkja hæfni sína með þjálfun, námskeiðum og endurmenntun.

  • Aðbúnaður og kjör – við bjóðum samkeppnishæf kjör og tryggjum að aðbúnaður sé sem bestur.

  • Jafnvægi og jafnræði – við styðjum við jafnvægi milli vinnu og einkalífs og leggjum áherslu á jafnan aðgang og tækifæri óháð kyni, aldri, uppruna eða annarri stöðu.

  • Jákvæð fyrirtækjamenning – traust, heiðarleiki og gagnsæi eru grunnurinn að jákvæðri menningu og öflugri liðsheild.

  • Ánægja og hvatning – markmiðið er að starfsfólk sé ánægt, metnaðarfullt og upplifi vinnustaðinn sem hvetjandi og eftirsóknarverðan.

IMG_2807.jpg
Starfsþróun

Hjá RST Neti fær starfsfólk tækifæri til að þróast í starfi með því að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum og öðlast reynslu á ólíkum sviðum. Við trúum því að besta starfsþróunin verði í daglegu starfi, þar sem ný verkefni, ábyrgð og reynsla styrkja hæfni hvers og eins. Reynslusögur starfsmanna sýna að
samvinna og hagnýtt nám í raunverkefnum eru lykillinn að því að vaxa með fyrirtækinu.


Dæmi um slíka þróun má sjá hjá Bjarka Gunnarssyni, sem hóf störf í suðuvinnu á dreifispennaverkstæðinu en leiðir nú, fimm árum síðar, tíu manna teymi sem deildarstjóri þjónustudeildar. Annað dæmi er Steinn Þórhallsson, sem byrjaði sem vélvirki þegar fyrirtækið vann að Vatnsfellsvirkjun. Í gegnum 25 ár hefur hann byggt upp sérþekkingu, m.a. með réttindum frá MR Reinhausen til þrepaskiptaupptekta, og stýrir í dag útibúi RST Nets í Vestmannaeyjum.

Lr.edit-25.jpg
shared image.jpg
Gildi RST

HEIÐARLEIKI
Er mikils metinn hjá RST Neti þar sem starfsfólk kemur fram hvert við annað, viðskiptavini og birgja af heilindum og tryggir þannig gagnsæi í rekstri.

ÞEKKING 
Er kjarninn í þjónustu og framleiðslu RST Nets sem leitast við að viðhalda henni og auka og byggja upp reynslu með stöðugum umbótum.

TRAUST

Er grundvöllur að velgengni RST Nets og er einlægur ásetningur fyrirtækisins að bera fulla virðingu fyrir þörfum viðskiptavina með því að veita ávallt góða og örugga þjónustu.

bottom of page