top of page
RST Website About.png

ÞJÓNUSTA

_DSC0120 (2).jpg
ÞJÓNUSTA

Þjónustudeild RST Nets veitir stórnotendum og orkufyrirtækjum faglega og áreiðanlega þjónustu.
Með stórnotendum er átt við aðila með mikla raforkuþörf, svo sem gagnaver, álver, stóriðju, sjávarútvegsfyrirtæki, flugvelli og fjölbreytt framleiðslufyrirtæki. Við leggjum ríka áherslu á öruggan rekstur, reglulegt viðhald og að lágmarka vinnslustopp með markvissum aðgerðum.

Þrepaskiptir.png

Spennaviðhald er einn af hornsteinum þjónustu okkar. Með reglulegum prófunum, mælingum og þrepaskiptaupptektum tryggjum við að búnaður haldist í sem bestu ástandi. Þessi nálgun gerir viðskiptavinum kleift að skipuleggja viðhald í áföngum, forgangsraða aðgerðum og koma í veg fyrir kostnaðarsamar bilanir. Með reglulegu spennaviðhaldi frá RST Neti er hægt að lengja líftíma spenna um 20–40 ár. Við framkvæmum viðgerðir, skiptum út slitnum aukahlutum og endurnýjum yfirborð með málningu þannig að búnaðurinn verður líkt og nýr.

IMG_0728-1024x768.jpg
_DSC0175.jpg

Við sinnum bilanagreiningu með háþróaðri mælitækni og sérfræðiþekkingu, sem gerir okkur kleift að greina orsakir rafmagnstruflana og bilana hratt og örugglega. Markmið okkar er að stytta viðbragðstíma, lágmarka rekstrartruflanir og auka afhendingaröryggi viðskiptavina.


Til að stuðla að lengri líftíma aflspenna bjóðum við upp á vinnslu með öflugum og fullkomnum olíuhreinsitækjum, m.a.  frá Micafluid. Slík olíuhreinsitæki gera okkur kleift að meðhöndla og sía  olíu og þar með viðhalda einangrunareiginleikum og bæta hitastjórnun kerfa. Með slíkum búnaði má bæta einangrunareiginleika, lengja líftíma búnaðar og draga úr áhættu á bilunum sem tengjast kælingu og einangrun.

Bjarki Gunnarsson.png
Bjarki Gunnarsson

Deildarstjóri 

Goði Ómarsson.png
Goði Ómarsson

Verkefnastjóri

Karl Davíð Ákason.png
Karl Davíð Ákason

Verkstjóri

bottom of page