
Ráðgjöf

STAFRÆN VÖKTUN
RST Net er söluaðili og samstarfsaðili Safegrid á Íslandi, og með þeirra Intelligent Grid System® getum við fylgst með mið- og háspennulínum og jarðstrengjum í rauntíma. Með stafrænni vöktun frá Safegrid fá viðskiptavinir nákvæmar upplýsingar, hraðari viðbrögð við bilunum og möguleika á að greina möguleg vandamál áður en þau valda truflunum.

Mælingar og Ráðgjöf
Fyrirbyggjandi mælingar í háspennukerfinu geta komið í veg fyrir bilanir og óvæntar útleysingar. Með mælingum á einangrun, hitastigi, úrhleðsla (,,partial discharge") og öðrum ástandsbreytum er hægt að greina veikleika. Þannig er hægt að skipuleggja viðhald áður en bilun verður alvarleg og tryggja stöðugan og áreiðanlegan rekstur raforkukerfa. Hjá RST Neti leggjum við áherslu á að nýta sérhæfðan mælibúnað og sérfræðiþekkingu okkar til að greina frávik tímanlega og styðja þannig við öruggan og áreiðanlegan rekstur raforkukerfa. Með reglulegum mælingum og sérsniðnum áætlunum hjálpum við viðskiptavinum að lengja líftíma búnaðar, lágmarka rekstrartruflanir og auka afhendingaröryggi. Þannig verða mælingar ekki aðeins fyrirbyggjandi heldur hluti af heildarlausn sem styður við öfluga og sjálfbæra orkudreifingu.
Með þessari sameinuðu nálgun – stafræn vöktun og reglulegar, sérhæfðar mælingar – stuðlar RST Net að því að rafkerfi landsins verði skilvirkari og öruggari. Þannig tryggjum við aukið afhendingaröryggi, betri nýtingu orkuauðlinda og innviði sem standast vaxandi kröfur um stöðugleika og sjálfbæra framtíð.


