
Gæði, öryggi og umhverfismál

Markmið fyrirtækisins er að vera í fremstu röð á sviði sérhæfðrar þjónustu og verktöku fyrir orkufyrirtæki og stærri raforkunotendur á Íslandi. Við leggjum ríka áherslu á öruggt starfsumhverfi, ábyrg vinnubrögð og að lágmarka áhrif á umhverfi og samfélag.
Starfsemin byggir á öryggis- og gæðakerfi og hefur fyrirtækið á undanförnum árum hlotið alþjóðlegar vottanir sem staðfesta þessa nálgun. Þar má nefna ISO 9001 (gæðastjórnun), ISO 45001 (öryggi og heilsuvernd) og nýjustu viðbótina ISO 14001 (umhverfisstjórnun) sem fékkst árið 2025.
RST Net hefur einnig kolefnisjafnað starfsemi sína með plöntun trjáa á Vestfjörðum og unnið markvisst að orkuskiptum.

Gæðastefna
Gæðastefna okkar byggir á gildum og heildarstefnu fyrirtækisins. Við erum leiðandi þjónustuaðili við íslenska orkugeirann og tökum að okkur þjónustu-, framkvæmda- og framleiðsluverkefni fyrir fjölbreyttan hóp viðskiptavina.

Stjórn RST Nets skuldbindur sig til:
Stöðugrar þróunar og framfara með virkri gæðastjórnun sem uppfyllir staðla, lög og reglugerðir.
Markvissrar ferlastjórnunar sem dregur úr sóun og tryggir farsælan rekstur til framtíðar.
Þekkingaröflunar og nýtingar gagna, sem stuðlar að samræmi í þróun og framleiðslu á vöru og þjónustu.
Skýrra gæðamarkmiða, sem eru endurskoðuð reglulega og rædd á gæðaráðsfundum.
Aukinnar ánægju viðskiptavina, með markvissri beitingu gæðastjórnunarkerfisins.
Samfélagslegrar ábyrgðar, þar sem gæði, þjónusta og framleiðsla eru ávallt byggð á
ábyrgum vinnubrögðum.
