top of page
RST Website About.png

Orkuskipti

DSC09402.jpg
ORKUSKIPTI

RST Net tekur virkan þátt í orkuskiptum á Íslandi með því að innleiða lausnir í samstarfi við helstu aðila á markaði. Við höfum meðal annars tekið þátt í verkefnum með Landsvirkjun, Laufey og N1 þar sem settar hafa verið upp Kempower hraðhleðslustöðvar sem tryggja áreiðanlega, sveigjanlega og notendavæna hleðslu fyrir rafbíla. Slík verkefni eru mikilvæg skref í uppbyggingu nauðsynlegra innviða til að styðja orkuskipti landsins.

Orkuskipti.png

Við bjóðum upp á fjölbreytt úrval af AC hleðslulausnum og smærri DC hleðslustöðvum frá VEGA Chargers sem henta vel fyrir fyrirtæki, sveitarfélög og aðra aðila sem vilja bjóða upp á örugga og hagkvæma hleðslu. Lausnirnar eru sveigjanlegar, auðveldar í notkun og hannaðar til að mæta þörfum bæði almennings og atvinnurekstrar.


Í nánustu framtíð teljum við að BESS (Battery Energy Storage Systems) og DC-Grid lausnir frá MR Reinhausen verði lykilþættir í að byggja upp sjálfbæra orkudreifingu og auka afhendingaröryggi. Með þessum lausnum verður mögulegt að bæta nýtingu endurnýjanlegrar orku, jafna sveiflur í framleiðslu og stuðla að stöðugra raforkukerfi sem styður við markmið Íslands um kolefnishlutleysi.

Gylfi Bragason.png
Gylfi Bragason

Verkefnastjóri

bottom of page