
Framleiðsla
Framleiðsla
RST Net framleiðir sökkulsettar þriggja fasa dreifispennistöðvar undir vörumerkinu VERTO DTS®, hannaðar fyrir jarðstrengskerfi dreifiveitna landsins.
Stöðvarnar eru innlend framleiðsla sérsniðnar að þörfum viðskiptavina og framleiddar samkvæmt ströngustu gæðakröfum.
Allar stöðvar eru prófaðar samkvæmt IEC 60076 staðlinum sem tryggir öruggan rekstur og áreiðanleika til framtíðar.
Helstu stærðir:
-
Málafl: 50 kVA, 100 kVA, 200 kVA, 315 kVA
-
Málspenna: 11/0,42 kV og 19/0,42 kV
-
Staðalútgáfa með 2–3 háspennuinngöngum, tengiflokkur Dyn5
Töflusmíði
RST Net sérhæfir sig í hönnun, smíði og uppsetningu á öllum gerðum rafmagnsskápa – allt frá lágspennutöflum upp í öflugustu afldreifiskápa. Við vinnum með skápa frá ýmsum framleiðendum og getum þannig boðið lausnir sem henta ólíkum verkefnum og þörfum viðskiptavinarins hverju sinni.
Við höfum verið í samstarfi við verkfræðistofur, birgja og fyrirtæki um land allt. Hjá RST Neti leggjum við áherslu á gæði, sveigjanleika og lausnir sniðnar að þörfum hvers viðskiptavinar til að tryggja áreiðanlegan rekstur.
Skinnusmíði: Á töfluverkstæði RST Nets er skinnuvél af fullkomnustu gerð sem beygir, klippir og gatar.


STJÓRNSKÁPAR
RST Net sérhæfir sig í hönnun, smíði og forritun stjórnbúnaðar fyrir veitukerfi og iðnað. Við sjáum um uppsetningu, gangsetningu og prófanir á verkstað og bjóðum jafnframt þjálfun rekstraraðila í notkun búnaðarins.
Í samstarfi við trausta erlenda framleiðendur og birgja bjóðum við heildarlausnir í stjórn- og varnarbúnaði, sniðnar að kröfum verkkaupa og alþjóðlegum stöðlum. Tæknimenn okkar hafa víðtæka reynslu í forritun RTU og PLC kerfa, m.a. PCM600 frá ABB, Allen Bradley / Rockwell og Siemens.
Allir stjórnskápar eru prófaðir á verkstæði okkar áður en þeir eru afhentir og settir upp á verkstað, sem tryggir gæði, öryggi og áreiðanleika í rekstri.
%204_59_02%20p_m_.png)
STÁLSMÍÐI
RST Net þróar og hannar sérsniðnar lausnir fyrir raforkugeirann.
Starfsemin nær yfir hönnun, teikningu og framleiðslu á búnaði sem tengist vélbúnaði raforkuvirkja og annarra mannvirkja þar sem áreiðanleiki og öryggi eru í fyrirrúmi.
Fyrirtækið nýtir m.a. öflugan suðuþjark frá Migatronic sem tryggir hámarksgæði og nákvæmni í allri suðuvinnu.
Áherslur okkar eru að:
-
Skila sérsniðnum lausnum sem þjóna þörfum viðskiptavinarins
-
Sameina verkfræðilega hönnun og faglega smíði í heildarlausn.
-
Tryggja endingargóðan, öruggan og skilvirkan búnað.



