RST NET SÉR VAÐÖLDUVERI FYRIR RAFBÚNAÐI
- RST

- Sep 18, 2025
- 2 min read

Á myndinni fagna samningnum þau Sigurgeir B. Geirsson, yfirverkefnastjóri Vaðölduvers, Ásbjörg Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri framkvæmda, Steinn Ágúst Steinsson, sérfræðingur í þróun vindorku, Sigmundur Jónsson, framkvæmdastjóri RST Net, Bergsteinn Daníelsson, verkefnisstjóri hjá RST Net og Sigrún Elva Reynisdóttir, sérfræðingur hjá Landsvirkjun.
Landsvirkju hefur samið við RST Net um hönnun, innkaup, framleiðslu og uppsetningu á rafbúnaði í safnstöð á framkvæmdasvæði fyrirhugaðs vindorkuvers við Vaðöldu. Samningurinn nemur rúmum 450 milljónum króna og var tilboð RST Net metið hagstæðast af fjórum sem bárust.
Helstu verkþættir samningsins fela í sér útvegun og uppsetningu á 33 kV og 11 kV dreifingu ásamt stöðvarnotkunarspennum. Þá verður smíðuð og sett upp 400 V aðaldreifing og tvær jafnstraumsdreifingar. RST Net sér einnig um útvegun, forritun og uppsetningu á stjórn- og varnarbúnaði, auk eftirlits, tenginga og frágangs á 33 kV og 11 kV strengjum. Loks felur samningurinn í sér útvegun og uppsetningu á 220 kV gegnumtökum ásamt ýmsum auka- og viðbótarverkum.
„Þetta er stór áfangi í uppbyggingu Vaðölduvers,“ segir Sigurgeir B. Geirsson, yfirverkefnisstjóri Vaðölduvers. „Við erum afar ánægð með að semja við íslenskt fyrirtæki sem hefur mikla þekkingu og reynslu á þessu sviði. Með þessu tryggjum við öflugan rafbúnað sem mun nýtast til að tengja vindorkuna við raforkukerfið og styðja þannig orkuskipti framtíðarinnar.“
Sigmundur Jónsson, framkvæmdastjóri RST Nets -„Það er ánægjulegt að Landsvirkjun hefur metið okkar tilboð um afhendingu rafbúnaðar til Vaðöldu hagstæðast og staðfest með undirrutun samnings. Það er okkur mikill heiður að fá tækifæri til að taka þátt í þessu mikilvæga verkefni, sem við teljum að muni stuðla að enn frekari styrkingu orkuöryggis og sjálfbærni á Íslandi. Við leggjum ríka áherslu á áreiðanleika, gæði og skilvirka framkvæmd og munum gera okkar ýtrasta til að tryggja að afhending og þjónusta standist væntingar Landsvirkjunar. Við hlökkum til komandi verkefna og að halda áfram okkar farsæla samstarfi hér eftir sem hingað til.”

















Comments