
STÓRFRAMKVÆMDIR
.jpg)
STÓRFRAMKVÆMDIR
RST Net hefur mikla reynslu af uppsetningu og endurnýjun búnaðar í aðveitustöðvum, virkjunum og tengivirkjum bæði hefðbundnum og stafrænum, auk hjálpar- og stjórnbúnaðar.
RST Net sinnir lagningu og tengingu jarðstrengja. Framkvæmdadeildin okkar hefur einnig tekið að sér uppsetningu og tengingu á aflmiklum varmadælum.
.png)
TENGIVIRKI
RST Net hefur langa reynslu af uppsetningu búnaðar í bæði gas- og lofteinangruðum tengivirkjum og hefur séð um uppsetningu margra af stærstu tengivirkjum landsins. Meðal tengivirkja sem RST Net hefur sett upp eru stafræn gaseingruð tengivirki á Hnappavöllum, á Sauðárkróki og í Lækjartúni.
RST Net hefur ýmist unnið við uppsetningu búnaðar sem undirverktaki framleiðanda tengivirkjanna eða sem aðalverktaki þar sem RST Net hefur séð um hönnun, smíði á undirstöðum, innkaup búnaðar og uppsetningu.
RST Net vinnur með svissnesku verkfræðistofunni KEK, sem sérhæfir sig í stjórn- og varnarbúnaði í stafrænum tengivirkjum og er RST Net í dag helsti sérfræðingur á Íslandi þegar kemur að stafrænum tengivirkjum. Við sjáum um að forrita búnaðinn og erum með prófunarbúnað og prófanir á höfuðstöðvum okkar í Álfhellu.
Meðal stafrænna tengivirkja sem RST Net hefur sett upp eru: Lækjartún, Korpa, Njarðvíkurheiði og Blanda.


Háspennutengingar
RST Net sinnir lagningu og tengingu jarðstrengja.
RST Net hefur bæði A og B löggildingu til rafvirkjunarstarfa við há- og lágspennuvirki og fjöldi starfsmanna hefur reynslu og réttindi til tenginga háspennustrengja, allt að 145 kV.
Virkjanir
RST Net tekur að sér alla framkvæmd við uppsetningu búnaðar í rafmagns- og vélahluta orku- og iðjuvera.
Stærsta verkefni RST Nets í virkjunum var uppsetning alls véla- og rafbúnaðar í Vatnsfellsvirkjun sem undirverktaki GE Hydro.


